Gísli Marteinn Baldursson

@gislimarteinn.bsky.social

Sjónvarpsmaður og óopinber borgarfulltrúi. Einn eigenda Kaffihúss Vesturbæjar. Vesturbæingur úr Breiðholtinu.

Lokaþáttur Vikunnar er á föstudaginn (2. maí). Það stóð til að vera ekki með neina miða í boði á þann þátt - en svo skiptum við um skoðun og ætlum að fylla salinn af skemmtilegu fólki. Má bjóða einhverjum hér? Sendið mér DM hérna og ég kem ykkur að. Lofa góðu stuði og skemmtilegum þætti.

Af hverju heyrist svona lítið í þeim borgarfulltrúum og þingmönnum sem þykir vænt um Reykjavík? Endalaus þvæla um of mikla þéttingu og of mikla aðför að einkabílnum og þessu er ekki mótmælt af neinum krafti. Og af hverju er ekki byrjað að byggja í Nýja Skerjó? Viljum við ekki fleiri íbúðir?

Það er absúrd að tala um skort á lóðum til uppbyggingar en tala ekki um að við getum á morgun byrjað uppbyggingu í Nýja Skerjó þar sem hægt er að byggja 700 íbúðir. Borgarstjórn er skíthrædd og þorir engu og ríkisstjórnin virðist of hrædd við að standa með Rvk. Þar sem þriðjungur landsmanna býr.

Ég er kannski að missa af einhverju en ég sé ekki alveg í hverju trúnaðarbrestur úr forsætisráðuneytinu á að felast. Sú sem biður um fund með KF segir að fundurinn eigi að vera um Ásthildi Lóu og að það megi alveg boða Ásthildi líka á fundinn. Aðstoðarmaður KF segir Ásthildi það. Trúnaðarbrestur?

Ég hugsa 10 mín fresti yfir Adolescence ,, hvernig í andskotanum gerðu þau þetta?" Burtséð frá frábæru handriti, leik, þema um karlmennsku og öllu þá er ótrúlegt að þeim hafi tekist að gera þessa þætti í einu skoti. Sumt er alveg úti hött. Stórkostlegir þættir♥️

Bild

„Ég er orðinn upplýstari neytandi,“ segir Marie Anderson, slökkviliðsmaður frá Danmörku. Ný könnun sýnir að allt að helmingur Dana sniðgengur bandarískar vörur, til að mótmæla tollastríði Donalds Trump Bandaríkjaforseta og ásækni hans í Grænland.

Í flestum borgum eru ákveðnir dagar sem göturnar eru sópaðar. Ef fólk færir ekki bílinn sinn, þá er sektað eða bíllinn hreinlega fjarlægður á þeirra kostnað. Hér heima erum við með götusópa sem eru í stórsvigi á milli bíla sem stand við götukant og fyrir vikið er verr sópað og meira svifryk.

Under Article 5 of the North Atlantic Treaty, an attack on one NATO member is an attack on all. Only the USA has ever appealed to NATO for help under Article 5, and America’s allies rose to the occasion. Now the White House is antagonizing, insulting and threatening NATO members.

Bild

Hneyksli að á fallegum dögum einsog í dag í RVK þá sé staðbundið svifryk það mikið að fólk er með grímu fyrir vitum og finnur sviða í öndunarfærum. Þetta er verst vor og haust þegar bílar eru enn á nöglum þótt það sé engin ástæða til. (Ég er að tala um staðbundin loftgæði, þau voru ágæt heilt yfir).

Mas hér á heima er fólk ennþá að segja: „BÖrN eRu FaRIN aÐ sKIlgrEInA sIg sEm kETti!“. Staðreyndin er sú að hinn meinti kattasandur sem katta-krakkinn í USA átti að nota, fannst hvergi. En tilgangurinn var líka aldrei að taka á katta-vandamáli. Hann var að grafa undan trans börnum. Bæði úti og hér.

Ben Collins@bencollins.bsky.social · 2y ago

Three years ago, three other reporters and I ID'd and called any school accused of having litter boxes for furries. We found one (1) in the entire country: Columbine's school district. Cat litter was for a "go bucket," in case kids were locked in during a shooting. www.nbcnews.com/tech/misinfo...

"Er það kannski málið að þeim var aldrei annt um þessi mál – heldur snérist þetta um að nýta sér orðræðu um tjáningarfrelsi og þöggun til að grafa undan jafnréttisbaráttu og níðast á minnihlutahópum, eins og mörg okkar hafa bent á lengi? Dæmi hver fyrir sig. Mér finnst þögnin allavega ærandi."

Bild

Áhugavert hvernig fólkið sem hampaði Musk og Trump af því þeir væru málsvarar málfrelsis, þegja núna þegar skrúfað er fyrir peninga til háskóla vegna mótmæla stúdenta, D.C. nema hún þurrki burt tjáningu til stuðnings mannréttindum og þegja þegar Mahmoud Khalil er fangelsaður fyrir skoðanir sínar.

Dáldið leiðinlegur blettur á annars góðri helgi að bæði nýjasti Severance og nýjasti White Lotus voru frekar slappir. Það verður eitthvað að fara að gerast í WL. Þessi uppbygging, eins fín og spennandi og hún var í fyrstu 2 þáttunum, er orðin ansi langdregin. Og baksaga Harmony í Severance var mehh.

Skil ekki af hverju þingmenn geta ekki náð saman um minni breytingu á áfengislögum, td að fara sænsku leiðina sem býður upp á léttan bjór 3,5% og undir í verslunum. Léttur bjór og áfengislaus bjór er alltaf að verða vinsælli og þetta myndi örugglega auka neyslu léttra bjóra á kostnað sterkra.

Nýi samgönguráðherrann skilur ekki neitt í því hvers vegna borgin gengur ekki strax að allskyns skrýtnum kröfum um að hún aðlagi sig að Reykjavíkurflugvelli. Það sem ég skil ekki í málum Reykjavíkurflugvallar er hvernig flugbransanum hefur tekist að gaslýsa okkar með allskonar þvælu...

Þetta Öskjuhlíðarmál tekur á sig farsakenndari blæ. Samstilltur grenjukór í fjölmiðlum sem láta spila með sig og hér er þingmaður að mæla með harkalegri valdbeitingu í nafni "flugöryggis". Það er svona korter í að einhver leggi fram tillögu um að setja Reykjavíkurflugvöll í stjórnarskrá.

Samgöngustofa nýti ekki allar lagaheimildir til að bæta flugöryggi - RÚV.is

Samgöngustofa nýtir ekki allar heimildir í lögum til að bæta flugöryggi, að mati þingmanns Sjálfstæðisflokks.

ruv.is

Frábær grein. Hvar vill íslenska hægrið vera í þessu? „There should be no doubt about what is happening. The Trump-Vance-Musk regime wants to empower the nationalist far-right in Europe in order to divide European democracies and weaken the western alliance. It strengthens the global oligarchy.“

The Guardian@theguardian.com · 2y ago

In the global clash between democracy and oligarchy, the US is switching sides | Robert Reich