María Björk

@baragrin.bsky.social

Þá er það enn ein drullan

Almennt er ég nú á móti hernaði en ef við þyrftum að stofna her hér á landi þá tilnefni ég stanleycup ræktargellurnar sem eru á stigavélinni í klukkutíma án þess að svitna. Þær eru óstöðvandi.

ég hef aldrei verið jafn mikill þræll kapítalismans eins og í gær þegar ég stóð í hagkaup á meðal svona 600 unglinga að leita að the viral tiktok sensation dubai chocolate

maður er alveg með ofbirtu í augunum þessa dagana svo svakalega bjart og sólríkt haa nei segi svona bara myrkur allan sólarhringinn ekkert nema myrkur og súld sem umlykur mann hverja einustu mínútu hva sólin í jólafríi eða hahaha neinei einmitt einmitt

Ef við segjum sem svo að ég ætti nágranna sem hefur mikið dálæti fyrir reykingum og ver mörgum stundum í sameiginlegum garði að hósta eins og berklasjúklingur á dánarbeði. Er eitthvað lagalega sem stendur í vegi fyrir því að grýta viðkomandi með til dæmis strepsilspakka?