Danninn 2026

@danninn.bsky.social

Miðaldra karl frá unga aldri.

Bók 18, Sovande Jättar. Mjög góð hugmynd sem er hræðilega útfærð með ótrúverðugum skjölum úr skjalasafni, ekki góð frásagnaraðferð. Viðbrögð annarra ríkja við basli USA enn ótrúverðugri. Tvær bækur í viðbót í seríunni sem ég mun ekki lesa. Ein stjarna, og hálf í viðbót fyrir frábæra hugmynd. ⭐ ⛅

Kápa bókarinnar Sovande Jattar með mynd af stjörnuhimni sem myndar andlit.

www.dv.is/433/2026/07/... Af öllum ástæðum til að vara við MR, þá eru -ég tók ekki þátt í neinu, nennti ekki að læra og leiddist þar- ekki mjög góðar. Ég var þar í kringum '90 og fannst mjög gaman, en áttaði mig á því seinna að þetta var eineltisgreni. Ég vona að það hafi breyst mikið síðan þá.

Óskar Hrafn horfir með hryllingi til baka á árin í menntaskóla - „Ég sagði við börnin mín að fara ekki í MR“

Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfari KR mætti í vikunni í hlaðvarp til Jóns Ólafssonar þar sem hann fór yfir lífið og tilveruna. Hann ræddi fótboltann en einnig margt annað.Óskar ólst upp Í Vesturbæ og bý...

dv.is

Jólaundirbúningur byrjaður. Plötur 14 og 15, Home for Christmas með Dolly Parton og Once upon a Christmas með henni og Kenny Rogers. Ég slysaðist í Jólagarðinn og þetta var til þar. Ég gat ekki sleppt því að kaupa þær. Þið hljótið að skilja það.

Plötuumslög, á öðru er mynd af Dolly í hvítu dressi með hvíta húfu, hvíta hanska og hvítan loðfeld yfir axlirnar. Hún situr í hvítum sleða með uppbólstruðu rauðu pluss sæti og heldur í reiðtygi, en mögulegur hestur (væntanlega hvítur) er utan myndar.
Á hinu umslaginu er jólakrans og í honum Dolly, Kenny og hreindýr. Kenny er í jólasveinabúning og Dolly á líklega að vera eiginkona jólasveinsins.

www.visir.is/g/2026291455... Það var einkafyrirtæki sem vildi fá framhaldsskólakennara til að safna gögnum um nemendur með því að nota eitthvað forrit í kennslu til að þróa eitthvað AI sem átti svo að selja skólum. Fyrir þetta átti auðvitað ekki að borga neitt.

Vilja fá ó­keypis að­gang að gommu af höfundar­vörðu efni - Vísir

Hildur Knútsdóttir rithöfundur segir að hún hafi fengið sérkennilegt viðskiptaboð fyrir skömmu sem gekk út á „samstarf“ við aðila sem eru að þróa gervigreindarforrit til að styðja við lestrarkennslu. ...

visir.is

In Iceland we have three right wing parties: The Center party, your ultra right wing facists. The Indipendence party, the do everything for the rich party. The Reform party, the market is God party.

Bók 17 er Incarcerat eftir Garth Marengi sem er tilbúin persóna eftir Matthew Holness úr þáttunum Garth Marengi's Darkplace, sem eru frábærir og m.a. Richard Ayoade og Matt Berry leika í. Þetta er allt endalaus snilld og ég mæli eindregið með þessu. Byrjið á að horfa á Darkplace. Fimm stjörnur ⭐⭐⭐⭐⭐

Forsíða bókarinnar með mynd af persónunni Nick Steen, sem lítur eins út og Garth Marengi, sem er skráður höfundur. Það eru fastar leiðslur, eins og fyrir heilalínurit við ennið á honum.

Aftur eru VG og Sjálfstæðisflokkurinn komin í eitthvað samkrull, núna í þessu Áfram Ísland dæmi, þrátt fyrir könnun sem sýndi að meirihluti væntanlegra kjósenda VG vilji skoða samning. Þessi flokkur er náttúrulega eitthvað...

Ég er á indverskum veitingastað í Utrecht og það eru Indverjar að borða hérna. Þýðir það ekki að þetta hljóti að vera góður staður? Kemur í ljós á eftir.

Þoli ekki ákveðna tegund af evrópskum karlmönnum, yfirleitt berfættir í brúnum mokkasíum og merkjavöru fötum með hárið sleikt aftur. Langar samt svo að cosplay-a svona týpu.

Evrópski herinn er hugmynd um aukna samvinnu og uppbyggingu evrópskra herja, þ.e. herja aðildarlandanna. Meðan ekki er til íslenskur her er enginn Íslendingur að verða skikkaður í herþjónustu.

Margt fólk á erfitt með að meðtaka að manneskja geti gert bæði góða og vonda hluti, eins og að nauðgari geti samið fallega tónlist (eða verið góður í fótbolta) eða að pervert geti gert besta utanríkissamning sem Ísland hefur gert og barist fyrir sjálfstæði Eystrasaltsríkja.

Manni finnst stundum eins og nei fólkið hafi aldrei komið til Evrópu. A.m.k. virðist það vera haldið miklum ranghugmyndum um löndin þar. Öll sem hafa einhvern tíma komið til Evrópu ættu að sjá að málflutningur þessa fólks er almennt argasta bull og rangfærslur.

www.ruv.is/frettir/innl... Ég held að Kristján hafi rétt fyrir sér þarna, en ekki af þeirri ástæðu sem hann heldur, heldur af því að auðvaldið á eftir að dæla milljónum í þjóðernisrembingsáróður. Reyndar getur það að hafa herra Loftsson háværan í nei-liðinu verið gott fyrir jáara.

Hefur ekki trú á að Íslendingar segi „já“ í ágúst - RÚV.is

Forstjóri Hvals hf. hefur ekki trú á því að Íslendingar velji að halda til viðræðna við Evrópusambandið eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna í ágúst. Hann segir að til þess séu þeir almennt ekki nógu heimski...

ruv.is

Smá æfing í lesskilningi: 1. Ef sagt er að einhver hafi misst sig merkir það að viðkomandi hafi gert eitthvað sem hann átti ekki að gera. 2. Ef sagt er að eina afleiðingin af viðskiptum A og B sé að A sé refsað en engar afleiðingar fyrir B er EKKI átt við að ekki hafi átt að refsa A.

Það er reyndar langt síðan ég keyrði yfir Öxi en ég man ekki eftir þessum byggingum þar. Lítur nú frekar út fyrir að þær hafi verið sprengdar en að skortur á viðhaldi hafi valdið þessu ástandi.

Mynd af húsarústum, líklega á Gaza eða í Suður Líbanon. Fáni ísraelsku þjóðarmorðingjanna blaktir við hún.

www.dv.is/frettir/2026... Við erum hætt að ala börn upp og þegar þau fara yfir strikið og einhver missir sig er viðkomandi refsað. Lærdómurinn er ég má gera hvað sem ég vil en enginn má gera neitt við mig. Þau þurfa virðingu og ást en líka aga og uppeldi. Undanlátssemi bætir ekki upp afskiptaleysi.

Sauð upp úr í gufunni í Salalaug - Veittist að „fáránlega frekum“ unglingsdreng og tók hann hálstaki

Karlmaður hefur verið dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að veitast að 13 ára dreng í Salalaug í október árið 2023, en dómurinn féll í Héraðsdómi Reykjaness á dögunum.

dv.is

www.visir.is/g/2026290406... Fyrirgefðu en ráðherra ætti alls ekki að taka upp hanskann fyrir einhverja hálfvita hjá einkafyrirtæki úti í bæ. Þar að auki hefur allur málflutningur Viðreisnar um hvalveiðar verið litaður af einhverju harðhausa tali einmitt til að ganga í augun á svona kallaköllum.

Hanna Katrín eigi að standa með starfs­fólki Hvals – ekki gagn­rýna það - Vísir

Vilhjálmur Birgisson, verkalýðsforkólfur á Skaga, er afar ósáttur við ummæli Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra og hann segir að hún eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna þa...

visir.is