👽Fannar Dauðyfli 👻

@edlifannarra.com

Langbesti hreyfihamlaði paunktrommarinn í 105. Börn/Dauðyflin/D7Y/Guðir hins nýja tíma. (Hán)

Sum svona þjónustuvers e-mail frá stórum alþjóðafyrirtækjum eru orðin svo bilað væmin eitthvað að þau láta þjónustufulltrúa hljóma eins og maður hafi sent þeim mynd af sér með skammbyssu beinda að höfði hundsins þeirra

Mér finnst leiðinlegt að ég hef ekki fundið eina youtube rás sem er að vinna með Cartoonist Kayfabe formattið: ítarlegar greiningar á myndasögum frá sjónarhorni fólks sem hefur það að atvinnu að teikna myndasögur. Manben er gott en þar er mun þrengri fókus og færri þættir

Teiknaðar stuttmyndir eða stuttar teiknimyndir? Allavegana þetta er vanmetið listform og mér finnst sorglegt hvað það er erfitt að sjá mörg verk. Ég var að horfa á Dieu est timide eftir Jocelyn Charles og hún er ótrúlega falleg og áhrifarík. Hún á eftir að sitja í mér held ég

Ég veit að veðrið hér í Reykjavík í júlí er búið að vera heldur dapurt en sumarið er samt svo geggjuð árstíð. Að skjótast á bolnum út í bakarí og finna sæta gróðurlyktina þegar ég geng undir trén sem teygja sig yfir gangstéttarnar *kokkakoss*

Ég horfði á School on Fire eftir Ringo Lam. Hún er mun meira yfirþyrmandi og níhílískari en ég bjóst við. Ég hef ekki séð margar myndir eftir hann en þessi er held ég uppáhalds. Full Contact er í öðru sæti og City on Fire í þriðja

Það er ógeðslega fyndið að það hafi verið orkudrykkur sem hét HIV. Mögulega skelfilegasta markaðssetningarákvörðun Íslandssögunnar. Btw ég er að hefja framleiðslu á nýjum gosdrykkjum: Covid Cola og Ebólsín

Ég er búið að taka morgna í sátt síðan ég sneri sólarhringnum mínum á hefðbundnari tíma í apríl. En mér finnst ennþá ég þurfa að sofa lengur og ég á erfiðara með að finna djúpan fókus

Eitt það besta við að alast upp á heimili með Amiga tölvu var að setja diskettuna í og þá kom eitthvað cracktro með bilað harðri technotónlist áður en ég gat spilað Mikka Mús litaleikinn minn

Ég er að taka helgina í að gera ekkert nema að spila Mina the Hollower. Mikið stuð hingað til en pínu erfitt fyrir týpu eins og mig sem sökkar í tölvuleikjum en er of þrjóskt til að stilla erfiðleikastigið á eitthvað aðeins léttara

ég hef mjög oft krækt trommukjuða í gleraugun mín og hent þeim eitthvert út í buskann í miðju lagi. einu sinni flækti ég trommukjuðanum í hárið á mér. en áðan voru Börn að æfa og ég náði að slá kjuðanum upp í mig, aftan í góminn. mér finnst það frekar vel af sér vikið