Hannes Johnson

@hannesjohnson.com

🚀 Passionate about the Internet, marketing & UX ❤️ I like creating stuff: photos, websites, videos, music… 🎯 Building gsdmf.com to help side-project people pick up where they left off, stay focused, and get more sh*t done.

Um tímann og vatnið Mögnuð mynd. Mjög falleg. Skemmtileg blanda af mjög gömlum fjölskyldumyndum & myndböndum og svo nýju myndefni af jöklum og náttúrunni. Allt efnið frá Andra & fjölskyldu hans gerði þessa mynd svo mannlega og tengda við raunveruleikann – engin of-framleidd og steríl viðtöl. 8/10

Graphic with the poster for Time and Water, plus a review in Icelandic.

Spider-Man: Brand New Day Mjög fín mynd. Flott myndataka og töff action-atriði. Góður húmor. En líka slatti af drama – ýmis togstreita og þróun á persónum. The Punisher er alltaf svalur. ⭐️ 8/10

Promotional poster for Spider-Man: Brand New Day. Close-up of Spider-Man and a reflection of MJ in his eyes.

The Odyssey Magnað ferðalag. Mögnuð kvikmynd. Risastór – á svo margan máta. Endalaust af risastórum leikurum. Algjört listaverk. Frábær myndataka & magnað umhverfi (leikmynd, búningar o.s.frv.). Mjög vönduð mynd. Dramatík & spenna. Tónlistin var líka geggjuð. Löng, en þétt mynd – góður ryþmi. 9/10

Promotional poster for The Odyssey. The Trojan horse and Matt Damon (Odysseus).

Toy Story 5 Skemmtileg og fyndin mynd. Sniðug og áhugaverð þróun á leikfangasögunni. Gaman að sjá þróunina á grafíkinni á milli mynda allt frá fyrstu Toy Story 1995 – grafíkin núna er eiginlega óaðfinnanleg. Topp fjölskyldumynd. 8/10

Promotional poster for Toy Story 5 – showing all the main characters, with the Lilypad tablet in front.

Disclosure Day Mjög spennandi mynd – fínasta keyrsla. Töff myndataka. Góðir leikarar. Mjög dularfull mynd (saga). En ég set nokkrar spurningar/athugasemdir við handritið. 7/10

Promotional poster for Disclosure Day, showing Emily Blunt, with a silhouette of a cardinal.

Michael Áhugaverð og grípandi mynd. Eitt og annað „fyrir minn tíma“ sem ég vissi ekki almennilega af. Legendary lög. Legendary dansar. Legendary tónlistarmyndbönd. Myndin endar 1988 á "His story continues" og það er verið að vinna í framhaldsmynd... 8/10

Promotional poster for Michael, showing Jaafar Jackson wearing a red leather jacket

Mortal Kombat II Brutal movie. Exciting. A bit of a B-movie vibe – but totally fun. Good humor mixed with great fight scenes. Awesome nostalgia and good entertainment – a full-on action ride. 7/10

Poster for Mortal Kombat II showing all the various characters.

The Super Mario Galaxy Movie Skemmtileg fjölskyldumynd. Spennandi. Fín action atriði. Skemmtileg blanda af nútíma grafík og gamaldags grafík (í stíl við gömlu leikina). Ánægjuleg nostalgía. En fyrri myndin var örlítið skemmtilegri. 6/10

Promotional poster for The Super Mario Galaxy Movie showing all the various characters.

Project Hail Mary Frábær bíómynd! Virkilega skemmtileg – miklu fyndnari en ég bjóst við (sprenghlægileg á köflum). Spennandi og áhugaverð vísindaskáldsaga – flottur heimur sem var búið að skapa. Góð dýnamík á milli persóna og gott handrit. 10/10

The promotional poster for Project Hail Mary – Ryan Gosling tied to a spaceship

Crime 101 Töff mynd. Töff myndataka. Spennandi – góður thriller, góð saga, góðir leikarar. Smá gamaldags mynd – hefði getað verið gerð í 90's. Solid löggu & bófa mynd. 8/10

Promotional poster for Crime 101 – showing the four main characters

Marty Supreme Kaótísk hvatvísi. Smá erfið orka í kringum Marty 😅 Rosalega mikið að höstla og redda sér – skilur eftir sig sviðna jörð. Spennandi mynd og líka fyndin (hlægilega absúrd). Nokkuð hröð keyrsla – þéttur taktur. Mikið í gangi í þessari löngu mynd. Töff myndataka og útlit. 7/10

The promotional poster for Marty Supreme – a big photo of the main character.

Avatar: Fire and Ash Risastór mynd! Þessi Avatar heimur er magnaður – áhugavert og flott lífríki. Svakaleg grafík. Mikið sjónrænt listaverk. Löng mynd, en ekki langdregin. Mjög spennandi – hélt góðum takti. Flott og stór bardagaatriði. Avatar myndirnar eru einstakar. Einstök upplifun. 9/10

Promotional poster for Avatar: Fire and Ash, showing all the main characters.

Anaconda Skemmtileg vitleysa. Spennandi og fyndin. Skrímslamynd sem tekur sig ekki alvarlega – mikið (fyndið) bull á köflum. Áhugavert concept – öðruvísi nálgun á reboot/endurgerð. 7/10

Promotional poster for Anaconda – with Paul Rudd and Jack Black

Wicked: For Good Litríkt listaverk – flott leikmynd og myndataka. Epískur söngur. Gaman að þarna kom meiri tenging við Yellow Brick Road, Dorothy og gengið hennar. Ágætis fjölskyldumynd. 6/10

Promotional poster for Wicked: For Good – showing Oz and the two main characters

Ha! 😄 Very clever addition to Spotify Wrapped – a great sharing/engagement bait. I'm seeing a lot of people sharing this part especially (and it's getting replies from their followers).

My listening age: 18 – Since I was into mostly new music

One Battle After Another Frábær mynd. Þétt keyrsla frá byrjun. Mjög einstakur húmor – en mjög fyndin. Skemmtilega öðruvísi og óvænt mynd. Flottir leikarar – klikkaðar og quirky persónur. Geggjuð myndataka. Góð tónlist sem passaði vel og gerði mikið fyrir atriðin. 9/10

Promotional poster for the movie One Battle After Another, showing Leonardo DiCaprio and Chase Infiniti.

Nobody 2 Action-mynd sem tekur sig ekki alvarlega. Góð skemmtun – ákveðinn rússíbani sem þarf bara að njóta án þess að hugsa of mikið út í lógík og handritið. Over-the-top ofbeldi og sprengingar, sem var smá kómískt. Slatti af one-liners; stundum töff/fyndið/kjánalegt. Fyndin spennumynd. 7/10

Promotional poster for Nobody 2, with Bob Odenkirk in a chair by a pool.

Freakier Friday Skemmtileg mynd. Ágætlega fyndin inn á milli. Ég bjóst alveg við að hún yrði meira cringe kjánaleg, en það slapp ágætlega. Fín stefnumótamynd. 7/10

Promotional poster for Freakier Friday, with Lindsay Lohan and Jamie Lee Curtis.

The Naked Gun Mjög fyndin mynd – það var mikið flissað og hlegið. Skemmtilega gamaldags húmor – alveg flashback nostalgía í gömlu myndirnar. Sum atriðin voru meira bull & vitleysa en önnur (sem var mjög skemmtilegt 😂). Ekta old-school afþreying. 8/10

Promotional poster for The Naked Gun, with Liam Neeson and Pamela Anderson

28 Years Later Flott & spennandi mynd. Bæði falleg myndataka & töff myndataka. Ekki eins mikið af stressandi zombie eltingaleikjum & jump scares eins og í fyrstu tveimur – farið örlítið mýkra í hryllinginn. Meira verið að byggja upp persónur, búa til drama… Alveg nokkur creepy & WTF atriði. 7/10

Promotional poster for 28 Years Later showing the skull tower.