Hermigervill

@hermigervill.bsky.social

Hakkebøf fra helvede

Það er búið að vera töluverð umræða um Count Binface síðustu misseri, og margir búnir að reyna að þýða nafnið hans á íslensku með misgóðum árangri. Mér finnst bara eitt koma til greina, og það er Sorphöfði.

Ég er búinn að vera í smá sköpunarlægð síðustu vikur, en svo var ég á Buxu-reivinu um daginn og það var einhver þar sem dúndraði svo svakalegu hrósi á mig og mín verk að ég fékk alveg ferskan meðbyr og trú á sjálfum mér. Langar að þakka þér, hver sem þú ert, fallega eintak af manneskju. 💝

Hún amma mín, Sigurlaug Bjarnadóttir úr Vigur (ávallt kölluð Lulla) hefði orðið 100 ára í dag, 4. júlí 2026. Þær Elísabet Bretlandsdrottning voru jafnöldrur og náðu þær báðar 96 ára aldri! Hún var algjör kvenskörungur, var t.a.m. alþingiskona, rithöfundur og kennari. Til hamingju með daginn amma!

Amma Lulla á Ísafirði

Ég hef ekki spilað proper Hermigervils live sett síðan held ég AFÉS ‘22 (getur það verið??) Er núna búinn að grafa upp græjurnar og ætla að telja í á hinni margfrægu listahátíð Hörmungardögum á Hólmavík þessa helgi! Vona að þetta drasl virki allt ennþá!

Græjur og dót í tösku

Biðst fyrirfram afsökunar á að brydda hér upp á leiðinlegasta umræðuefni landsins, nagladekkjum. Er viljandi ekki á nöglum í bænum, en þarf að skreppa á Vestfirði í nokkra daga í febrúar, og ætla að prufa að leigja mér nagladekk. Verður forvitnilegt að sjá hvernig það kemur út.

Nú er ég ekkert mikill preppari þannig, en ég ætla samt að ráðleggja ykkur, ef þið eigið mikilvæg gögn á amerískum síðum, eins og t.d. Dropbox, OneDrive o.þ.h. að kaupa harðan disk og ná í þetta allt og eiga afrit sem ekki er hægt að loka á aðgang að. Bara til vara.