Inga

@ingaboogie.bsky.social

Fullkomin meðalmanneskja - she/her

Lélegasti húmor okkar hjónanna þessa dagana er að tala um allar peningafjáhæðir í „kúlum“ Dæmi: ég lagði 0,1 kúlu inn á sameiginlega reikninginn áðan (100 þúsund kall)

Þið hafið heyrt um fólk sem fer hlæjandi í bankann með alla peningana sína. Svo er annað fólk (eg) sem hristist af hlátri í strætó með klappkortið sitt. Kampakátt í morgunumferðinni, svífandi áfram á rauðri akrein eða á móti umferð 💅😌💃

Ég átti almennt frekar glötuð uppvaxtarár. En það er fátt úr endurminningum æsku minnar sem veldur mér jafn mikilli velgju og saltkjöt-og-baunir-túkall. Vanrækslan var svo rækilega undirstrikuð í útþynntu baunasúpunni sem var hituð upp sjötta daginn í röð. Ekkert annað á boðstólnum alla þessa daga.

Í dag fór ég (34 ára) upp í Tækniskóla þar sem strákur klippti mig og litaði. Hann var á síðasta ári sem þýðir að hann hefur verið svona 20 ára. Kennarinn spurði mig hvort ég væri mamma hans :)