Í laugardagskvöldsmynd á RÚV er Al Pacino, lásasmiður í Texas, með þráhyggju fyrir gamalli kærustu sem endursendir bréfin hans. Þegar hann skoðar mynd af henni í ca sekúndu er hún á Þingvöllum.
Þórdís Gísladóttir
@thordisg.bsky.social
Author/poet/translator in Iceland (and sometimes in Sweden and Denmark)
Ég er að horfa á bíómyndina Hvítir mávar og velti því fyrir mér hvaða efnum þetta fólk hafi verið á. Þau virðast hafa skemmt sér vel.
Skil ekki hvers vegna ég má ekki leigja út herbergi heima hjá mér á airbnb eins margar nætur og mér hentar.
Þessi epli vaxa á trjám í mínum eigin garði rétt hjá Hlemmi.
Laufey og tvíburasystir hennar bera nafnið Laufey allt öðruvísi fram en ég hef vanist.
Sú sem segist vera „ein af strákunum“ er oftast bara karlasleikja.
Kíkti á fb. Þar eru annars vegar langir statusar um lestrarapp og hins vegar langir statusar með myndum af fólki, sem er nú sextugir sigurvegarar, en myndirnar sýna þau frjálsleg í fasi þegar þau voru í MH. Kíki aftur í næstu viku og vona að þetta verði yfirstaðið.
Hugmynd að drykkjuleik yfir sjónvarpsfréttunum kvöldsins: Skála þegar Inga Sæland segir „Gummi“
Þegar ég var unglingur sýndi RÚV fræðslumyndir um hassreykingar
Það besta við þennan sólmyrkva var dagskrá RÚV í dag.
Hef ekki séð neinar myndir af Stuðlagili og Grænahrygg í sumar. Hvert er sumarkonan að fara?
Ég er með vikulega þætti á Rás eitt í nokkrar vikur. Nýjasti þátturinn heitir „Maðurinn með hauskúpuna“ og hann fjallar um þennan mann.
Þegar ég var barn voru járnsmiðir algengustu dýr lífs míns og það boðaði ógæfu að drepa járnsmið. Nú sé ég aldrei járnsmiði og velti ég því fyrir mér hvar járnsmiðirnir séu.
Eitt ömurlegt við að alast upp í blankheitum og lifa svo á námslánum í 15 ár er að loksins þegar ég hef efni á að fara á tónleika með JJ Cale er hann löngu dauður.
Hvort sem þið liggið í sólbaði eða eruð að aka um þjóðvegina þá get ég sagt ykkur sögu á meðan www.ruv.is/utvarp/spila...
Í upphafi var myndin - Spilari RÚV
Rakin er saga hótelstjóradóttur sem fæddist í Hafnarstrætinu í Reykjavík. Á unglingsárum sigldi hún til Kaupmannahafnar og lenti þar á refilstigum í strætum sem mörgum þóttu býsna vafasöm. Frá Danmörk...
ruv.is
Ég er að byrja með röð sjálfstæðra þátta á RÁS 1 kl. 10:15 í fyrramálið. Fyrsti þátturinn hefur yfirskriftina „Dæmd í vændishús“ og þar er rakin saga konu sem fæddist í Hafnarstræti í Reykjavík en varð seinna krimmi og njósnari í útlöndum.
Heyrt í Ikea Kona: Alltaf þegar börnin fá ís má ég fá hvítvín.
Það stendur í fasteignaauglýsingu að þessi nýju hús séu „vönduð og glæsileg”
Hvers vegna eru ekki jafn langar og djúpar samræður um bókmenntir og um fótbolta?
Dýrafrétt sem endar á „segir meindýraeyðir“ er alltaf drasl.