evil sexy bríet

@thvengur.bsky.social

Shes back back back again

Þurfti að sækja aftur um húsaleigubætur og sendi inn launaseðlana mína fyrir sl tvo mánuði og þau voru svo fljót að segja "úff okei já þú færð bæturnar þínar aftur" að ég held að ég þurfi að bóka mig í launaviðtal

Er alltaf að sjá myndbönd af manni sem er að þrífa og gera upp brúðarkjóla og ég hugsa alltaf "hmm kannski ætti ég að senda honum minn brúðarkjól?" en svo man ég að ég er ekki gift

Sagðist hafa verið að útrétta um helgina við yngri samstarfskonu og fann að heimurinn er breyttur. Ég finn fyrir því í vatninu. Ég finn fyrir því í jörðinni. Ég finn lyktina af því í loftinu. Margt af því sem áður var er glatað, því allir þeir sem mundu eftir því eru farnir.

Kötturinn minn var að tilkynna mig fyrir dýraníð eftir að ég beið með að gefa henni kvöldmat á meðan ég söng cruel angels thesis fyrir hana (ég skipti út textanum fyrir "kisur segja mjá ekki voff")