Þvotturinn endar ALDREI! Var að brjóta saman helling og ganga frá en það er fullt eftir! Mig vantar svona snilling eins og á þvottahúsinu í Róm sem þreif viku virði af þvotti og braut saman fyrir litlar 20 evrur.
Sveina
@viskan.bsky.social
Einstæð. Einhleyp. Einstök. Eilítið geggjuð. A coffee enthusiast who appreciates the beautiful chaos of life.
Bíó hack ef þig langar ekki að sjá mynd sem barninu langar að á. Opna hópspjall með systrum og mági sem eiga dætur ári eldri en þitt barn og athuga hvort þau vilji líka losna við sín börn í nokkrar klst. Trillurnar 3 fara í bíó og á meðan get ég get drukkið kaffi, hlustað á bók og gert sudoku.
Þurfti að renna í bæinn og vesenast smá... Hringdi í afkvæmið til að láta vita að ég væri á leið heim. "Mamma... geturu verið í burtu í 2klst takk! Ég vil smá alone time. Bless ég elska þig!" Svo var skellt á mig... SMS stuttu síðar "Ég veit, hálfur poki af blautmat handa kisu. Sjáumst seinna!"
Fór á fætur kl 7 með kisu... borðuðum morgunmat saman, lék við hana og fórum aftur að sofa. Á meðan hefur skottan steinsofið. Það s.s var smá leikur í litlu og vildi ekki að hún færi að vekja barnið sem sofnaði í bílnum í gær...
Okay... ég er kannski smá ástfangin af henni líka. Nema þegar hún er að ráðast á Drekatréið mitt eða þegar hún pissaði á sófann.
Barninu mínu langar í hátt rúm (Storå) úr IKEA svo gólfplássið inni hjá henni nýtist. Mér hrýs hugur við tilhugsunina um að þurfa að fara þar upp. Ég er drullu lofthrædd 🫠 Ég geng nálægt vegg ég heimsæki @glytta.bsky.social og fer svo ekki langt út á svalir hjá hafi eða vini mínum sem býr á 3 hæð.
Það er kettlingur sofandi inná peysunni minni á bakinu... svo ég er nap trapped. Í gær lagði hún sig í 5klst (ekki á mér eða inná fötunum mínum) svo ég held ég verði að reyna að komast úr peysunni svo ég geti gert eitthvað í dag. Kattaskattur.
Það að vera vakin með "Elskan mín var ég að vekja þig?" "Já mamma, hvað er?" "Ekki gætir þú keyrt mig til læknis í bænum? Það er svo mikið leguhljóð í bílnum að ég vil helst ekki fara inneftir á honum." "Jú, skal redda því. Hvenær áttu að mæta og hvar?" ...það var uppi á Höfða klst seinna...
Skottan fer til pabba síns og ég mála... en nú er amk orðið ansi heimilislegt hér á bæ! Þá er að reyna að finna ljós sem passa heimilinu...
Sumir lita á sér hárið þegar tilfinningalífið er í ruglinu en þar sem hársnyrtirinn minn (og vinur) myndi EKKI vera sáttur við slíkt mála ég í staðin. Húsið mitt er að byrja að verða heimilislegt. Mikið eftir en mér líður loksins eins og þetta sé HEIMILI okkar.
Seint og síðar meir. Svaraði e-mail í dag sem var sent í byrjun mars. Fyrstu 5 mánuðir ársins voru ansi strembnir. Efast um að það muni hafa einhver áhrif að ég svaraði svona sein en kannski er það bara óskhyggja. En ég svaraði, þó seint væri.
Annaðhvort voru uppáhalds buxurnar mínar orðnar soldið vel nýttar eða rassinn orðinn of stór í þær. Sprengdi botninn á þeim í dag... þakka fyrir að þetta var dagurinn sem ég var í síðri peysu 😅
Ég svaf á sófanum hálfa nóttina í nótt. Krakkinn var svo plássfrek að ég þurfti að flýja. Hefði geta farið í hennar herbergi að sofa... en þægilegi sófinn minn varð fyrir valinu 😊
Kvöldsólin á pallinum mínum er ansi ljúf en pallurinn snýr í suðvestur. Sat úti með systur minni í dágóðan tíma að spjalla um allt og ekkert á meðan dætur okkar voru að horfa á mynd. Gærdagurinn var góður dagur, smá bras og stúss. Það er samt olíulykt í bílnum mínum...
Víkingahátíð og svo var sent skottuna (og frænku okkar) í sund... þær eru enn í sundi 2klst eftir að ég skildi þær eftir þar. Mæli með að kíkja á hátíðina! Mikið gaman og mikið fjör!
Jæja... dagurinn sem barnið er komin með eigið sundkort og bauð frænkum með í sund en ekki mér rann upp í dag. Það sem eitt sundkort getur glatt! Aðeins minni gleði yfir því að strætó gengur á 1klst fresti í sumar á virkum dögum milli 7.00-20.00 Laugardagar 11.00-14.00 Sunnudagur ENGINN akstur 🫠
Og heima. Æðislegt ferð í flesta staði en við hlökkum til að sofa í okkar rúmum 😊
Móðir, skotta og sólsetur á Ischiu. Ferðadagur í dag og við erum komnar til Ischiu, barnið gæti ekki verið hamingjusamara og það mun alltaf fylla hjarta mitt þegar hún er glöð.
Ef þið eruð á leið til Flórens mæli ég eindregið með Forno Becagli, þetta er bakarí. Án alls gríns þá eru hornin þarna þau allra bestu sem ég hef á ævi minni smakkað! Skottan mælir eindregið með súkkulaði gaurnum en ég crema. share.google/OVkDbBQkMgz2...
Google Search
share.google
107 mínútna seinkun á lestinni til Flórens í gær. Vorum ansi búnar á því og fórum eiginlega beint að lúra. Núna erum við að rölta um borgina og skoða söfn, vissum þið að það eru 2 Leonardo da Vinci söfn í Flórens? Það vissi skottan, við erum á því seinna núna. Gelato er í náinni framtíð.
Barn með svefngalsa eftir erfiða nótt. Bjarta hliðin er að það er SNEMMA að sofa því við erum að fara í flug í fyrramálið... Hún var að syngja Lovefool með Cardigans rétt áðan hástöfum á meðan hún er með litnæringu í hárinu og núna er það The one that got away með Katy Perry.
Búin að pakka öllu sem hægt er fyrir ferðina, sem er flest nema það sem fer í handfarangur. Hús passarinn er með lyklavöld. Tiltek og að klára þvott langt komið. Víkingakjóll á skottuna fyrir víkingahátíð saumaði ég í vikunni, svo við eru tilbúnar þar líka. Núna er bara að bíða eftir brottför.
Fann gistingu í Flórens í innan við 10mín göngu frá Santa Maria Novella, með góð ummæli, á góðu verði OG þau sendu mér google map tengil með áhugaverðum stöðum í Flórens. Ekki bara áhugaverðum stöðum heldur líka veitingahús og verslanir nálægt íbúðinni. Við erum mjög sáttar við þennan fund 😊
Er of snemmt að pakka þegar það eru enn tæpur mánuður í brottför? Er búin að fá pössun fyrir plönturnar og heimilið. Búin að redda fari á völlinn og því að við verðum sóttar. Allt er bókað sem hægt er að bóka með þessum fyrirvara.
Það er Baunahátíð hérna suðurfrá... það er yfirleitt flest sett á fyrr helgi hátíðarinnar svo ég er að þeytast fram og til baka í Reykjanesbæ svo krakkinn geti tekið þátt. Er við það að fara að setja í viðurlög í umgengninni að annað foreldrið díli við ljósanótt og hitt Baunina 🫠
Söngnámskeið 12 á 4 vetrum aflokið. Skottan stóð sig að sjálfsögðu eins einstaklega vel eins og alltaf. Er svo stolt!
Svona dagar (eins og sá sem ég er enn á þar sem ég er ekki farin að sofa) eru mjög vel þegnir! Fékk mjög heimsókn frá elsku @glytta.bsky.social og spjallað tímunum saman, og borðað bakkelsi. Svo farið í þáttagláp og kósí en ég var að lenda heima, þreytt en rosa þakklát fyrir að eiga góða að 💜
Söngsýning 11 á 4 árum hjá skottunni var í dag. Sýning númer 12 er eftir hálfan mánuð. Var að ræða við skottuna um að mögulega taka bara eitt námskeið næstu önn... það var ekki samþykkt, heldur var beðið um að mögulega bæta við leiklistar námskeiði. Söngur og leiklist er alvöru mál hér á bæ.