Matthildur

@wargur.bsky.social

Mikið væri skemmtilegt ef einhver sem kemur að þróun ísland.is myndi láta sér detta í hug að ráða eins og einn starfsmann til þess að koma með hugmyndir til að bæta notendaupplifun. Bara svona smá pæling eftir að hafa sótt um endurnýjun vegabréfs fyrir tvö börn.

Af einhverri ástæðu hefur algóritminn á þessu forriti ákveðið að ég elski blóm, mat og uppskeru fólks á grænmeti sem það hefur sjálft ræktað. En aðallega blóm. Það eru virkilega margir sem setja inn myndir af blómum hingað inn.

Af hverju ekki að ganga lengra? Atkvæði fólks undir 30 gilda 0,5. Fólk eldra en 80 0,5. Ef þú átt 2 eða fleiri börn? Atkvæðið gæti verið x2. Barnlaus eftir 30? Úff, 0,25. Ef lýðræðið þarf ekki að vera sanngjarnt þá getum við bara ákveðið hverjir eru betri þegnar en aðrir og ættu að vega þyngra.

Bild

Það er svo ótrúlegt að hugsa til þess að "gervigreind" sem er alin upp á ógrynni mismunandi sköpunar mannfólks æli sama skítnum úr sér aftur og aftur. Ég veit ekki hvað ég get höndlað mikið meira af auglýsinga "veggspjöldum" sem líta öll út fyrir að hafa verið klónuð í sömu verksmiðju. Sem þau eru

Ný Resident Evil mynd að koma bráðum. Sama hversu hræðilegar flestar myndirnar og Netflix þættirnir eru þá hef ég samt alltaf gaman af því að sjá þær og held alltaf fast í vonina að þetta nýjasta brjóti bölvunina.

Ríkið: Það er nú slæmt að allt fylgi verðbólgunni á sjálfstýringu. Líka ríkið: Að sjálfsögðu hækka öll gjöld sem ríkið innheimtir um andvirði verðbólgunnar.

Sonur minn fær útborgað í fyrsta skipti á morgun. Ég spurði hvort hann væri búinn að hugsa eitthvað um hvað hann ætlaði að gera við peninginn. Jújú, hann ætlar að kaupa hníf í Counter Strike (tölvuleik). 🤔

Ég fékk óvenju "mannlegt" svar frá bandarísku þjónustuveri sem var að svara mér út af pöntun á Obsession varning sem ég hef svo ekkert heyrt af. Þau sögðu einfaldlega að allt hefði farið í rugl hjá þeim af því þau voru ekki undirbúin fyrir hversu vinsæl myndin yrði.

Ég reif niður stóra hillueiningu nýlega og er að taka umferð 2 í að fara í gegnum bækur af því að ég get ekki átt allar og núna er þetta talsvert erfiðara verkefni en fyrsta atrenna.

Ef þetta er skoðað út frá viðskiptahagsmunum þá er þetta svo mikil vitleysa. Svona er þetta rugl bara birt sem frétt. Það er enginn sem þjáist af járnskorti í Afríku að hafa efni á fæðubótarefni framleitt í einu dýrasta landi heims úr afurð sem er ekki eftirspurn eftir.

Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í fram­leiðslu fæðubótarefnis - Vísir

Stjórnendur Hvals hf. er hættir að selja hvalkjöt til Japans og hyggjast þess í stað nýta kjötið til framleiðslu á járnbætiefni. Kristján Loftsson, forstjóri Hvals, segir járnskort útbreiddan og að þj...

visir.is

Það er rosalega skilvirkt að taka til í geymslunni með því að henda dóti úr henni. Alveg þangað til að maður fer svo úr geymslunni og íbúðin er í rúst 🤦‍♀️

Frá 500þ og upp í 20 milljón króna skaðabótakrafa per hund er frekar "delúlú". Svona miðað við hvað íslenskir dómstólar dæma í skaðabætur fyrir skaða á manneskjum.

Bild

Þriðja síðasta næturvakt sumarsins (og líklega ársins) að klárast fljótlega. Svo er ég aaaaaalveg að fara komast í mjög langþráð sumarfrí.

Ég á rosa erfitt með samkennd að sjá manninn benda á karið með dauðu minkunum þegar þeir voru hvort sem er á leiðinni þangað. Og þegar fólk talar um að minkarnir geti ekki farið aftur inn í hryllingsbúrin sín þá er ég fegin fyrir hönd minkanna. Það átti hvort sem er að slátra þeim öllum.

„Þetta er afleiðing af dýravernduninni þeirra“ - RÚV.is

Hundruð eða jafnvel þúsundir minka sluppu úr loðdýrabúi í Mosfellsdal í dag. Lögregla rannsakar hvort brotist hafi verið inn. Eigandinn telur dýraverndunarsamtök standa á bak við verknaðinn. Afleiðing...

ruv.is

Hvað er málið með að allir ákváðu að láta gervigreind búa til auglýsingar fyrir sig sem allar líta nákvæmlega eins út? Ég get þær ekki 🤮 sá meira að segja hvolp auglýstan með ai-mynd á svona auglýsingu nýlega. HVOLP!