Skilti dagsins: 🇮🇸 Láttu þér líða vel. Löng dvöl í heitum potti getur valdið vanlíðan 🇬🇧 Relax and enjoy. Too long time in the hot pot may couse dysphoria
Smakkaði kæstan hákarl. Ég bjóst við voðalegu bragði en það var bara...vont.
Við erum að spila Skýjó sem er þetta mjög skemmtilega spil þar sem maður segir alltaf þetta reddast en á endanum reddast það sjaldan
Sá karlmann með alpahúfu á Íslandi. Hef aldrei einu sinni séð slíkan í Frakklandi...
Það eru umræður í gangi hjá okkur. Borðar maður súpu eða drekkur hann hana?
Við erum mætt í sumarbústað og það eru þessar „Hvað gerðist á Íslandi [árið]“ bækur... Ég er alveg hugfanginn.
Konan mín: Einhver hér segir að það sé vond lykt af kranavatninu í Airbnb-íbúðinni. Er öruggt að drekka kranavatn á Íslandi? Ég: Já heyrðu láttu mig aðeins hringja í @heida.bsky.social kranavatnssérfræðing
Það eru nýir litir í Google Dagatal. Þetta er gjörbreyting. Nei, þetta er bylting!
Á skiltinu fyrir framan bílaplanið nálægt íbúð foreldra minna stendur „Opið kl. 8 – 22. Lokað kl. 22 – 8“. Mér finnst þessi nákvæmni mjög fyndin. Gæti staður verið hvorki opinn né lokaður?
Mér finnst alltaf mjög áhugavert hvernig erlend orð eru aðlöguð frönsku. Ég var að heyra auglýsingu frá Google en "Gemini" var borið fram /ʤemini/. Fyrsta samhljóðið er erlent (við segjum helst /ʒ/) en endinn hefur verið franskaður.
Ég var á tónleikum Vulfpeck. Ein af uppáhalds hljómsveitunum mínum. Þeir voru geggjaðir!
Það pirrar mig að aðstoðarspjallmenni á vefsíðum séu alloft með kvennafn.
Símafyrirtækið mitt telur Ísland vera hluti af Evrópusambandinu
Konan mín horfir á Only murders in the building þættina. Ég horfi ekki en ég elska að hlusta á rödd Selena Gomez... Svo einstök.
Ég get ekki þolað þessar hitabylgjur lengur. Bara 2 vikur áður en ég fer til Íslands...
Við heimsóttum frændur konunnar minnar (tengdafrændur mína?) sem búa í stórkostlegu húsi nálægt hafinu. Veðrið var frábært, bjart en ekki of heitt. Himnaríki á jörðu.