Heiða

@heida.bsky.social

📍🇮🇸 🏳️‍🌈🇪🇺🏴‍☠️ | hún/she | lögfræðingur | áhugakona um veröldina og mismunandi menningarheima

Svo fyndið að ganga framhjá Hallgrímskirkju og sjá suma túristana pósa fyrir framan eins og þeir séu í America’s Next Top Model

Eru kisurnar ykkar stundum bara að chilla og spretta síðan af stað eins og andsetnar um alla íbúð? Eða er okkar kannski bara andsetin👀

Það er fjármagn á Nei hliðinni jesús, vorum að keyra útúr bænum og það er líkt og Halldór Benjamín hafi hringt í allar auglýsingastofur landsins eitthvað: Gefðu mér Nei auglýsingaskilti, Nei skóla, Nei heybagga, traktora, vörubíla, krana, já og svo alla forsíðuna á Vísi

„Ég er búinn að fylgjast með þessu þjóðfélagi í 50 ár. Þetta er ógeðslegt þjóðfélag, þetta er allt ógeðslegt. Það eru engin prinsipp, það eru engar hugsjónir, það er ekki neitt. Það er bara tækifærismennska, valdabarátta.“ - Styrmir Gunnarsson

Er að sjóða mér egg til að vinna upp á móti því að ég er bara búin að borða nammi og kökur í dag (afmæliskaffi, kosningakaffi, meira kaffi) og drekka koffíndrykki. Ef ég væri barn væri ég sennilega hlaupandi og æpandi í hringi um stofugólfið í sykurvímu.

Erum að keyra út úr bænum og það er hvert eitt og einasta auglýsingaskilti með Nei áróðri. Öll strætóskýli, flettiskilti, búið að koma upp krönum og skiltum á jörðu niðri - allt. Frekar augljóst hvar auðvaldið stendur.

Hótanirnar í garð Þorgerðar Katrínar eru verulega óhugnanlegar og magnað hve léttvægt sumum virðist finnast þær vera. Mv mörg kommenta ætti þetta kannski ekki að koma mani á óvart en fyrr má nú vera. Ég er ósammála mörgum í pólitík og hreinlega mjög illa við suma en þetta myndi aldrei hvarfla að mér

Ég að taka upp úr innkaupapokanum: „Donna þetta er sjampó“ D: já…? (💡) þú meinar þetta er ekki sturtusápa eins og þú *checks notes* skrifaðir á listann😅

dolly parton taught millions of children to read dolly parton raised millions of dollars for cancer research and disaster relief dolly parton stood by the lgbtq community her entire life dolly parton personally helped fund the moderna vaccine if there was a right side of something she was on it

ég: JESSS! Heiða: hvað? ég: var að skila quiz í Hagnýtri tölfræði og gagnagreiningu og fékk allt rétt Heiða: djöfulsins nörd ... Heiða: JESSSS! ég: hvað? Heiða: var að taka quiz í að nefna öll 27 ríki Evrópusambandsins á 5 mínútum og fékk allt rétt ég: djöfulsins nörd