Heiða

@heida.bsky.social

📍🇮🇸 🏳️‍🌈🇪🇺🏴‍☠️ | hún/she | lögfræðingur | áhugakona um veröldina og mismunandi menningarheima

Artemis mælir með þjóðsögum Torfhildar Hólm, enda var hún mögnuð. Byrjaði að safna sögum á undan Jóni Árnasyni, fékk listamannalaun frá ríkinu, fyrsti kvenkyns rithöfundurinn á Íslandi til að gefa út bækur, fyrsta konan til að gefa út tímarit, og alveg einstakt safn sagna!

Artemis, bröndótt kisa með græn augu, liggur á rauðbleiku rúmteppi með öxlina ofan á eintaki af Þjóðsögum og sögnum eftir Torfhildi Þorsteinsdóttur Hólm. Til hliðar er bindi af þjóðsögum Ólafs Davíðssonar.

Getur einhver útskýrt fyrir mér hvernig nei-sinnar sem vildu „standa með fullveldinu“ gleðjist núna yfir að við verðum mögulega nýtt Puerto Rico eða Guam?

Allar uppskriftir með arborio grjónum gera ráð fyrir að þær taki amk 3x styttri tíma en þær taka. Er þetta fólk að borða bara hrá grjón eða?

Ef þið viljið vita svona ca hvernig það er að hoppa ofan í heitan hver mæli ég með að fara í bað eða sturtu beint á eftir Donnu

Svo fyndið að ganga framhjá Hallgrímskirkju og sjá suma túristana pósa fyrir framan eins og þeir séu í America’s Next Top Model

Eru kisurnar ykkar stundum bara að chilla og spretta síðan af stað eins og andsetnar um alla íbúð? Eða er okkar kannski bara andsetin👀

Það er fjármagn á Nei hliðinni jesús, vorum að keyra útúr bænum og það er líkt og Halldór Benjamín hafi hringt í allar auglýsingastofur landsins eitthvað: Gefðu mér Nei auglýsingaskilti, Nei skóla, Nei heybagga, traktora, vörubíla, krana, já og svo alla forsíðuna á Vísi

„Ég er búinn að fylgjast með þessu þjóðfélagi í 50 ár. Þetta er ógeðslegt þjóðfélag, þetta er allt ógeðslegt. Það eru engin prinsipp, það eru engar hugsjónir, það er ekki neitt. Það er bara tækifærismennska, valdabarátta.“ - Styrmir Gunnarsson

Er að sjóða mér egg til að vinna upp á móti því að ég er bara búin að borða nammi og kökur í dag (afmæliskaffi, kosningakaffi, meira kaffi) og drekka koffíndrykki. Ef ég væri barn væri ég sennilega hlaupandi og æpandi í hringi um stofugólfið í sykurvímu.