Stjórn Trans Íslands lýsir yfir miklum vonbrigðum með ákvörðun borgarráðs um að leggja niður mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar. Yfirlýsinguna má lesa á vef félagsins: transisland.is/yfirlysing-s...
Trans Ísland
@transisland.is
Félag trans fólks á Íslandi. Félagið er málsvari og stuðnings- og baráttusamtök fyrir réttindum trans fólks á Íslandi. Stofnað 2007. 🏳️⚧️ Community-led trans rights advocacy. 🇮🇸🏳️⚧️
Fylgist með mér í dag á ráðstefnu í Danaveldi á Instagramsíðu TÍ (instagram.com/transisland) 🤓
VIÐ LOFUM að veita stuðning. #ÉGLOFA Stjórn Trans Íslands gefur litlafingursloforð um að styðja baráttuna gegn kynferðisofbeldi gegn börnum. Við hvetjum öll til að leggja baráttunni lið og taka þátt í þessu mikilvæga átaki Barnaheilla. 🩵🩷🤍
Reyn og Irma, forseti og ritari TÍ, mættu í Morgunútvarpið og spjölluðu um J.K. Rowling, en hún hefur á undanförnum árum nýtt áhrif sín og auðævi, sem hún hefur þénað á Harry Potter, til að styðja við hópa og aðgerðir sem hafa það að markmiði að grafa undan réttindum trans fólks. 👇🏳⚧
Morgunútvarpið - Spilari RÚV
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
ruv.is
Við @irmachine.bsky.social verðum í Morgunútvarpinu á Rás 2 kl. 8:30 að tala um ónefndan rithöfund fyrir hönd @transisland.is 👀📻🏳️⚧️
Í dag er alþjóðlegur sýnileikadagur trans fólks! Í dag fögnum við trans fólki nær og fjær og mikilvægi þess sem hluta af samfélaginu. Trans fólk á allan rétt á að fá að vera nákvæmlega eins og það er og taka pláss. Til hamingju með daginn! 🩵🩷🤍🩷🩵
Gleðilegan kváradag! Í dag fögnum við kynsegin fólki nær og fjær. Við hvetjum öll til að gera vel við kvárin í lífi sínu og minnum jafnframt á kváradagsgleðina sem haldin verður á Loft Hostel kl. 19 í kvöld. Kvár og velunnarar hjartanlega velkomin! 💛🤍💜🖤
Gleðilegan alþjóðlegan baráttudag kvenna! Trans Ísland hefur verið aðildarfélag Kvenréttindafélags Íslands síðastliðin 6 ár, en kvenréttindabaráttan og baráttan fyrir réttindum trans fólks eru ein og sama baráttan. Ekkert okkar er frjálst fyrr en við erum öll frjáls! ✊🏳️⚧️
Aðalfundur Trans Íslands var haldinn fyrr í dag. Á fundinum var Reyn Alpha Magnúsdóttir endurkjörin forseti félagsins og í stjórn sitja Aró Berg Jónasar, Irma Alexandra Hopkins, Kolbrá Ethel og Marteinn Lundi Kjartansson. Hlökkum til að takast á við ný verkefni á nýju starfsári! 🩵🩷🤍🩷🩵
Það eru 10 dagar í aðalfund! Við hvetjum allt áhugasamt trans fólk eindregið til að bjóða sig fram í stjórn! 🏳️⚧️👇
Aðalfundur Trans Íslands verður haldinn kl. 17:30 mánudaginn 23. febrúar næstkomandi í húsnæði Samtakanna '78 að Suðurgötu 3. Nánari upplýsingar á vef félagsins: transisland.is/adalfundur-t...
Aðalfundur Trans Íslands verður haldinn kl. 17:30 mánudaginn 23. febrúar næstkomandi í húsnæði Samtakanna '78 að Suðurgötu 3. Nánari upplýsingar á vef félagsins: transisland.is/adalfundur-t...
Stjórnarmeðlimir Trans Íslands voru gestir í sal Vikunnar í kvöld og skemmtu sér konunglega. Takk kærlega fyrir okkur, @gislimarteinn.bsky.social! 🩵🩷🤍🩷🩵
Stjórn Trans Íslands, félags trans fólks á Íslandi, hvetur stjórn Ríkisútvarpsins ohf. til að hafna þátttöku í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva árið 2026. Yfirlýsinguna má lesa á vef félagsins: transisland.is/yfirlysing-s...
Forseti Trans Íslands og formaður Samtakanna ’78 kalla eftir samfélagssáttmála um samskipti á netinu í tilefni af 16 daga átaki UN Women gegn kynbundnu stafrænu ofbeldi.
Ekki líta undan - Vísir
Gervigreind, nafnleysi á internetinu, skeytingarleysi samfélagsmiðlafyrirtækja og skortur á umsjón með kommentakerfum fjölmiðla eiga óumdeilanlega þátt í aukningu kynbundins stafræns ofbeldis síðustu ...
visir.is
Kíktu á vefverslun Trans Íslands! 🌈 Við erum með boli í stærðum XS-2XL og fallega límmiða svo þú getir sýnt stuðning við trans samfélagið. Fleiri vörur eru á leiðinni! Skoðaðu úrvalið á verslun.transisland.is 🏳️⚧️💖
Í dag var Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns kjörið formaður Pírata, en hán er fyrsti opinberlega kynsegin stjórnmálaleiðtogi Íslandssögunnar. Við óskum Oktavíu innilega til hamingju og vonum að hán verði öðrum kvárum fyrirmynd og innblástur til að láta til sín taka 💛🤍💜🖤
Oktavía er fyrsti formaður Pírata - RÚV.is
Píratar kusu sér formann í fyrsta skipti í dag. Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns stóð uppi sem sigurvegari.
ruv.is
Trans Ísland vill koma þessu verkefni Borgarbókasafnsins á framfæri, en þau eru að leita að fólki til að segja frá efni sem gefur því þá tilfinningu að það tilheyri, t.d. bók, lag, ljóð, kvikmynd, sögu, uppskrift eða annað. Nánari upplýsingar á vef Borgarbókasafnsins: borgarbokasafn.is/hreidrid
Minningarstund verður haldin á morgun kl. 17:30. Vonumst til að sjá sem flest! 🩵🩷🤍
Minningardagur trans fólks verður haldinn fimmtudaginn 20. nóvember næstkomandi. Trans Ísland heldur minningarstund í Regnbogasal Samtakanna '78 kl. 17:30 þann dag. Vonumst til að sjá sem flest! 🏳⚧
Minningardagur trans fólks verður haldinn fimmtudaginn 20. nóvember næstkomandi. Trans Ísland heldur minningarstund í Regnbogasal Samtakanna '78 kl. 17:30 þann dag. Vonumst til að sjá sem flest! 🏳⚧
Forseti Trans Íslands kíkti við í Mannlega þættinum í gær og ræddi nýútkomna skýrslu Nordic Safe Cities um hatursorðræðu gegn hinsegin fólki. 🏳️⚧️
Mannlegi þátturinn - Spilari RÚV
Í lok síðustu viku voru kynntar niðurstöður rannsóknar sem bar nafnið Öruggarin hinsegin borgir, sem unnin er af Nordic Safe Cities fyrir Reykjavíkurborg. Þar kemur fram að ein af hverjum tíu athugase...
ruv.is
Ég verð í Mannlega þættinum á Rás 1 að tala um nýútkomna skýrslu Öruggari hinsegin borga upp úr kl. 11 í dag, endilega stillið viðtækin!
Í gær ávarpaði ég málþingið Öruggari borg fyrir hinsegin fólk og talaði um þróun síðustu ára og mikilvægi þeirrar skýrslu sem málþingið var haldið vegna. Ávarpið er komið inn á vef TÍ 🏳⚧
Ávarp forseta á málþinginu Öruggari borg fyrir hinsegin fólk – Trans Ísland
transisland.is
Sú breyting varð nýverið á stjórn Trans Íslands að Jóhann Kristian Jóhannsson lauk störfum sem ritari. Við þökkum Jóa kærlega fyrir gott samstarf síðastliðið eitt og hálft ár og óskum hans alls hins besta! Nýr ritari er Irma Alexandra Hopkins og við bjóðum hana hjartanlega velkomna til okkar! 🩵🩷🤍🩷🩵
Vilt þú sýna stuðning við trans samfélagið í verki? Vantar þig nýjan bol? Þarftu fleiri límmiða á tölvuna þína? Kíktu þa á nýja vefverslun Trans Íslands á verslun.transisland.is! Sendum um allt land með Dropp 📦 🩵🩷🤍🩷🩵
Samstaða á tímum bakslags í mannréttindabaráttu hefur aldrei verið mikilvægari. En hvernig sýnum við samstöðu? Og hvernig getum við snúið þróuninni við? Ég og Sóley ætlum að bjóða upp á skemmtilega og gagnlega vinnustofu 20. október næstkomandi. Skráningarhlekkur fyrir neðan 👇
Í dag kom út þessi grein eftir Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra, þar sem hún fer yfir helstu staðreyndir um kynstaðfestandi heilbrigðisþjónustu á Íslandi og undirstrikar mikilvægi hennar. Við mælum eindregið með lestri hennar! Takk Alma 🩵🩷🤍🩷🩵
Ég er eins og ég er – um heilbrigðisþjónustu við trans fólk - Vísir
Af opinberri umræðu um málefni og stöðu trans fólks á Íslandi má sjá að töluvert skortir á þekkingu fólks þegar kemur að því hvernig heilbrigðisþjónustu við trans fólk er háttað.
visir.is
Þetta fer að bresta á! Gleðigangan leggur af stað frá Skólavörðuholti stundvíslega kl. 14 á morgun og við biðjum þátttakendur því að koma um kl. 13 í uppstillingu að bílastæðunum fyrir framan Tækniskólann. Atriðið okkar er númer 15 í göngunni. Hlökkum til að sjá ykkur! ✨
Trans Ísland býður öllu trans og kynsegin fólki sem og stuðningsfólki að ganga saman í gleðigöngunni 2025 laugardaginn 9. ágúst! Þemað í ár er Sterkust saman og við leggjum áherslu á mikilvægi samstöðu og að ganga sem eitt sameinað samfélag. Nánari upplýsingar: transisland.is/trans-island...
Í kvöld verður þessi mjög svo áhugaverða heimildarmynd sýnd í Bíó Paradís og að henni lokinni verða pallborðsumræður. Sýningin er styrktarsýning fyrir Trans Ísland og við hvetjum öll til að kaupa miða! 🎥
Fatherhood – Þrír pabbar -
Hrein og bein saga um hinsegin fjölskyldu Þrír karlmenn eiga von á sínu fyrsta barni. Kristopher, David og Sindre eru allir á fertugsaldri og búa saman &i...
bioparadis.is
Gleðilega hátíð Bluesky! Við minnum á grillið á Klambratúni á morgun. Endilega kíkið við, segið hæ og fáið ykkur pulsur! (Já, ég hef tekið þá skautandi afstöðu að segja pulsur) 🌭🌭🌭
Árlegt pridegrill Trans Íslands verður haldið miðvikudaginn 6. ágúst kl. 16:30 á Klambratúni! Trans Ísland sér fyrir veitingum. Nánari upplýsingar í viðburði. Hlökkum til að sjá sem flest! 🏳⚧
Trans Ísland býður öllu trans og kynsegin fólki sem og stuðningsfólki að ganga saman í gleðigöngunni 2025 laugardaginn 9. ágúst! Þemað í ár er Sterkust saman og við leggjum áherslu á mikilvægi samstöðu og að ganga sem eitt sameinað samfélag. Nánari upplýsingar: transisland.is/trans-island...