gummih 🥏

@gummih.com

Gæti í fyrstu virst voða vitlaus, það er bara mjög erfitt að fela það. gummih.com

Bíllinn minn er bilaður. En svo komst ég að því að það er svindl kóði: Svissa á, 2x inngjöf, N, 2x inngjöf, P, 2x inngjöf! Og þá er hann ekki bilaður lengur 🤯 Eða, þú veist, hægt að keyra hann hraðar en 3kmh. Ég hélt ég væri laus við svona með því að vera á 19 ára gömlum bíl 😩

Ég var að rekast á svolítið sem mér finnst að ég hefði átt að vita - en vissi ekki. Í WW2 hertók Japan tvær eyjar sem eru partur af Alaska. Bandarískt landsvæði var hersetið af erlendum her. Bandaríkin tóku eyjarnar aftur en 1500 hermenn dóu, 640 týndust (dóu líka) og 3400 særðust í bardögunum.

Hópurinn Gamlar ljósmyndir á Facebook er svo mikið menningar spesimen. Það eru yfir 90 þús meðlimir. Einhver póstar yfir 100 ára gamalli ljósmynd sem ferðamaður tók af hóp af krökkum og spyr hver séu á myndinni. Eldri náungi svarar, "já, þetta er mamma þarna lengst til hægri og bræður hennar og..."

Ef ykkur langar að upplifa að aldurinn sé að færast yfir... ...þá var... ...smáskífan Bad Guy með Billie Eilish gefin út fyrir meira en sjö árum. . . Það er sirka einn tólfti af mannsævi.