Auður Magndís

@lysislampi.bsky.social

Hinsegin og áttræð um aldur fram. Dósent í uppeldis- og menntunarfræði. Associate professor of childhood, youth and education studies University of Iceland

Já já, það er hægt að gera kannanir til að spá fyrir um niðurstöðu en það er ódýrara og einfaldara að hringja í mig og spyrja hvað ég vil því það eru um 99% líkur á að hið gagnstæða verða niðurstaða þjóðarinnar. Þetta hefur virkað í öllum kosningum nema rektorskosningunum.

Opinn gluggi, opið framm, slökkt á ofnum og samt eru 25-27 gráður á skrifstofunni minni þegar það er sól. Verður stuð þegar herbergisfélagar mæta til vinnu og við verðum þrjár í 19 fm. Ég er ein hér núna. Þetta hlýtur að vera eitthvað ólöglega heitt.

Skyldulesning! “Um leið og dánaraðstoð verður löglegur kostur hættir það að vera sjálfgefið að lifa með sjúkdómi allt til eðlilegs andláts. Þá þarf að velja það og jafnvel verja. Sá sem óttast að vera byrði gæti farið að sjá dánaraðstoð sem skyldu fremur en rétt.”

Dánaraðstoð: réttur fárra má ekki skaða aðra - Vísir

Mörg okkar hugsa um eigin dauða með óljósum kvíða og ótta við að enda ævina í þjáningu, vera ósjálfbjarga eða missa stjórn á aðstæðum.

visir.is

imo the primary anxiety behind "boys need positive male role models" is the necessity of ensuring that boys grow up to be men rather than something instinctively felt to be worse, i.e., not a man. you know. like a woman or a queer lol

Nú er góður tími til að minna á að Brynjar Níelsson lagði fram alls eitt frumvarp (4x það sama) á þingmannsferli sínum og það var til að refsa mæðrum fyrir að halda börnum sínum frá ofbeldismönnum. Hann er í 3.sæti á lista XD í Reykjavík í sveitarstjórnarkosningunum #kosningar

Bild

Loksins með opnun Sögu er stór og flott hjólageymsla fyrir starfsfólk. Nema svo keypti HÍ hjólagrindur sem næstum engin hjól passa í og ákvað svo í sparnaðarskini að hafa engar innstungur svo ekki hægt að hlaða rafhjól. Nú er fólk að hlaða hjólin sín í búningsklefanum eða geyma þau í gangveginum.

18 ára sonur minn er búinn að sækja um milljón sumarvinnur og fær engin svör. Er með reynslu af verslunar- og þjónustustörfum. Er að læra píparann. Látið mig vita ef ykkur vantar kurteisan og duglegan mann í vinnu eða vitið um eitthvað.

Ég er allt í einu farin að dæla út úr mér smásögum um fólk sem breytist í egg eða hest, nábrækur til sölu í Ellingsen, læk sem talar og tamda hrafna. Allt af því ég sá @thordis.bsky.social auglýsa ritlistarnámskeið Svikaskálda hér á Bláskjánum. Mæli svo mikið með.

Hafa hlustendur tekið eftir kynslóðamun á merkingu orðsins væntanlega? Ungt fólk í kringum mig notar það í merkingunni augljóslega en ég nota það í merkingunni líklega. Ef spurningu er svarað með væntanlega þá finnst þeim það vera svona "ekki vera bjáni að spyrja að þessu því svarið er augljóst".